top of page

Skemmtilegur og einkennandi póster byggður á slangri sem margir stuðningsmenn Breiðabliks þekkja vel. „Hverjir eru bestir í náranum“ er setning sem fangar létta stríðni, húmor og stemninguna sem myndast í kringum leikina, bæði á pöllunum og utan vallar.

 

Pósterinn er prentaður á hágæða pappír með skörpu og vönduðu útliti sem passar fullkomlega í heimilið, skrifstofuna eða stuðningsmannahornið.

 

Einnig tilvalin tækifærisgjöf fyrir sanna Blika sem vilja sýna stuðning sinn með persónulegum og skemmtilegum hætti. Þetta er póster sem vekur bros, kallar fram minningar og lætur engan vafa leika á því hvar þú stendur.


Prentað á hágæða pappír og afhent í fallegum gjafahólk. Tilbúið að setja beint í ramma.

 

Eftirfarandi þrjár stærðir eru í boði:

 

A2 sem er 420 x 594mm - 11.900 kr

A3 sem er 297 x 420mm - 9.900 kr

A4 sem er 210 x 297mm - 7.900 kr

 

Hverjir eru bestir í náranum

9.900krPrice
Quantity

    You Might Also Like

    bottom of page