Persónulegur póster fyrir sanna stuðningsmenn. Með Áfram "þitt lið" velur þú sjálf/ur hvaða lið á að standa á veggnum því stuðningur er ekki staðlaður, hann er persónulegur.
Hvort sem það er uppáhalds félagið þitt, lið barnsins eða vinahópsins, þá færðu póster sem endurspeglar þína tryggð og þinn lit. Hönnunin er stílhrein og kraftmikil og passar jafnt í heimilið, skrifstofuna eða hvar sem hentar hverjum og einum.
Pósterinn er prentaður á hágæða pappír með skörpum prentgæðum og vönduðu útliti.
Frábær gjafahugmynd fyrir alla stuðningsmenn, enda er ekkert skemmtilegra en að sjá sitt lið prýða vegginn með stolti.
Eftirfarandi þrjár stærðir eru í boði:
A2 sem er 420 x 594mm - 11.900 kr
A3 sem er 297 x 420mm - 9.900 kr
A4 sem er 210 x 297mm - 7.900 kr
