top of page

Verslunarstefna
Harpel

Gæði og framleiðsla

Hjá Harpel leggjum við áherslu á heiðarleika, fagmennsku og jákvæða upplifun í hverju skrefi. Markmið okkar er að byggja upp traust og langtímasamband við viðskiptavini með vönduðum vörum og framúrskarandi þjónustu.

​

Við leggjum metnað í hönnun og framleiðslu á vörum okkar. Pósterar eru prentaðar á vandaðan pappír og unnar af natni. Við kappkostum að tryggja að litir, áferð og frágangur standist væntingar. Athugið að litbrigði geta verið örlítið breytileg eftir skjáupplausn og birtingu á mismunandi tækjum.

Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti

Við hlustum á þarfir viðskiptavina og leggjum okkur fram við að veita persónulega og lausnamiðaða þjónustu. Fyrirspurnum er svarað af kurteisi og fagmennsku.

​

Við leggjum metnað í hönnun og framsetningu og kappkostum að hver vara endurspegli gæði og natni. Við viljum að vörur frá Harpel standi undir væntingum og gleðji viðtakandann.

Skýr ábyrg samskipti

Við leggjum áherslu á gagnsæi í upplýsingagjöf og heiðarleg samskipti. Ef upp koma mistök eða áskoranir bregðumst við hratt og örugglega við.

​

Við leitumst stöðugt við að bæta þjónustu, vöruúrval og upplifun viðskiptavina. Ábendingar og endurgjöf eru okkur dýrmætar og hjálpa okkur að vaxa.

Ábyrgur rekstur

Við störfum í samræmi við íslensk lög og reglur og leggjum áherslu á örugga viðskiptahætti. Við virðum persónuvernd og trúnað í öllum samskiptum.

bottom of page